lykilorðið er nafnið á syni bróður míns aðeins fyrstu tvö nöfnin...

Welkomin

03.12.2007 11:03:14 / Dutta6

Nenni þessu ekki...!

hæhæ :D
Já ég nenni nú ekki mikið að vera blogga þessa stundina. En það er ósköp lítið að frétta af mér svo sem. Byrja í prófum á föstudaginn og er ekki búin fyrr en 19. des sem er frekar fúlt.
Er í 6 prófum sem ég er svo skít fallin í hehe :PÞá er málið bara að skipta um skóla og meika það þar ;)

Reyndar er ég í tíma núna sálfræði og má því miður ekki vera að þessu en vildi bara koma svona með það helsta hehe ;)

heyrumst bara á næsta ári ;)

Dutta:$

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 14:18:22 / Dutta6

Langt um liðið...

hæhæ :D
Já það er orðið langt síðan ég hef bloggað enda ekki alveg að nenna þessu... Það er nú voða lítið búið að gerast í mínu lifi þannig séð... jú reyndar komin með einn æðislegan kærasta :D og er búin að sættast við hana Ernu mínu svo það er allt að fara á réttar slóðir núna :D

Skólinn er nátturlega löngu byrjaður og var busaballið geðveikt.. égvar raddlaus alla busavikuna og gat ekki talað eða lítið allavega... Ég er með Guðrún Lilju í herbergi, það er mjög fint fittum vel saman og erum alltaf i bænum hvern einasta dag nema núna þá komst ég ekki með  til reykjavikur því ég á að mæta í nudd kl 16:00 :haha: það verður bara næs láta nudda sig i 30 min bara dekur :)

Um hlegina var ég bara heima á Hvolsvelli. á föstudeginum fór ég til Sigga og skutlaði Leif vini hans í ekkurt partý hjá ekkerjum gaur og var svo bara heima hjá sigga langt fram á laugardag þá vorum við orðin svo svöng að við skeltum okkur út í golfskála til ingó og fengm okkur FEITT að borða hehe :D
kl19 kom svo Aron litli frændi minn og var ég með hann yfir helgina... Reyndar vildi hann sofa inni hjá Andra svo ég og Siggi fórum og kíktum til Valdísar.. Þar var ekkað svaðalegt partý og svakastuð, En við fórum bara heim um 2 og fórum að lúlla okkur... Vöknuðum svo við Aron um 10 leitið  á sunnudags morgninum, og þá var friðurinn úti...

Næsta helfi verður bara mjög róleg, held ég eigi ekkað að vinna og svo á laugardagskvöldið er matarboð hjá ömmu minni þar sem hún verður 65 ára :)ennþá bara unglamb haha:D

En núna ætla ég að fara læra smá og fara svo að leggja mig :) híhí læt heyri í mér seinna þegar ég hef ekkað að segja eða nenni að blogga :D

Dutta.....

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 19:38:28 / Dutta6

ágústblogg

hæhæ...

Get ekki sagt að það sé neitt mikið búið að gerast... fyrir utan kannski Þjóðhátíð... Það var íkt gaman þar :D Gerði ekkert af mér sé ég sé eftir svona af mestu auddað mátti sleppa einu atriði á sunnudagskvöldinu en það er liðið og búið að greiða úr því :D
Svo er ég bara búin að vera vinna og vera veik.... Já mín náði sér i hita og kvef á þjóðhátíð það er samt að fara svo ekki get ég verið að væla...

Skólinn er að fara byrja og er mér farið að hlakka doldið til :) hitta alla krakkana aftur og voðalegt stuð :) Ég er samt ekki byrjuð að pakka né vesla bækur fyrir árið :S svo ég er ekki alveg tilbúin til að fara i annan bekk... úff það verður tilbreyting búin að vera i fyrsta bekk í tvö ár á svo allt í einu að fara í ekkurn annan bekk... en það verður bara gaman vona ég og ætla ég eins og ég get að taka þennan bara einu sinni...

En ég er núna að spá í að fara út í búð og versla fyrir stelpukvöld hjá mér og Kristrós... já það er svaðalegt kvöld i kvöld.. allt rætt og tuðuað en auddað verður ein mynd í tækinu en já nú er ég farin og kannski blogga ég næst bara í sept hehe :D

þanngað til næst
Dutta

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 21:56:03 / Dutta6

punktablogg

hæhæ, Það er allt gott að frétta héðan. Ég var að koma úr Þórsmörk og var bara geðveikt gaman :) Valdís og Hafþór eiga ammæli i dag og voru því að halda uppá það í gær þarna i Þórsmörkinni.
En ég nenni ekki að blogga ekkað svakalega þannig ég ætla bara punkta niður það sem ég hef verið að gera og sonna :P (er ekki endilega í réttri röð)

  • Fór á bíladaga með Dúllu, Birgittu og Maríu. Var geðveikt gaman og forum fullar allan tíman og hef ég ekki skemmt mér svona vel LEENGI :D:D:D takk fyrir þá helgi stelpur ;)
  • búin að vera vinna eins og brjálæðingur enda slatti útborgað núna bara gaman af því :haha:
  • Var tekin fyrir of hraðan akstur var á 107 km/klst og þarf að borga 22.500 kr hvoki meira né minna en það var engin punktur hehe :D :P
  • Er komin með fullnægðar skírteinið og féll fullt hús þegar ég tók helvítis Akstursmatið :)
  • Fór í útilegu á Hellishóla úff það var svaðalegt og vil ég biðjast fyrirgefningar til Dúllu og Birgittu hvað var mikið vesen á mér, en ég endaði heima.
  • Fór í þórsmörk íkt gaman. fullt af fólki vorum i kringum 15 en 20 þegar mest var.. kom einn bíll bara um kvöldið og fóru aftur :)
  • langamma mín dó og var mikill söknuður þar á ferð en blessuð sé minning hennar :cry:
  • kláraði skólan og náði helvítis bekknum :D reyndar er fall i ensku en ég tek það bara með mér og brillera í henni í 2. bekk :)

Já þá held ég að þetta sé bara komið svona það mesta man ekkert núna enda ýkt þreytt og ekki i miklu blogg stuði eins og aðra daga... :D En næsta fyllerí er Bubba :) það verður sko þvílikt fjör og ógeðslega gaman :D vona bara að ég sjái sem flesta...
Svo er mðaur líka búin að borga flugið til Eyja og fer ég út á fimmtudegi og kem aftur heim á mánudeginum :) Það verður vonandi svaðalegt stuð og geðveikt gaman.. En núna ætla ég að muna eftir fimmtudagskvöldinu og skemmta mér miklu betur og ekki gera neinn skandal á þessari Þjóðhátíð....
En ég vil óska Valdísi og Hafþóri til hamingju með daginn aftur :)

bið að heilsa að sinni
Dutta eiturhressa :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 19:11:30 / Dutta6

mánðarblogg

hæhæ :D

Ætlunin er kannski ekki að blogga mánaðarlega en það er búið að vera svo mikið að gera í vinnunni að ég hef ekki haft tíma.
En jámm ég er búin að vera vinna og vinna og vinna :P Eg er búin með skólan og ég náði 1. bekk :D reyndar með fall í ensku fór í endurtekt og er ég eftir að fá einkunn...

ÉG keppti í mínu fyrsta golfmóti núna um helgina og ég vann var í fyrsta sæti... okey ég gleymdi að taka fram að ég var i hjóna og parakeppni og var það eginlega andra að þakka að við unnum vorum sem sagt að spila saman átti að slá annað hvert högg :)

Svo er ég búin að skreppa í bíó fór með Kristrós og Sigga í bíó um daginn svo með Andra ekkurn annan daginn... Mjög fínar myndir sem ég sá þar :P

23. mai tók ég próf á slátturvélar, traktor með sturtuvagn og ekkað meira kallað litla meira prófið og náði ég því í fyrsta þó ég muni ekki neitt né lærði ekkert þá náði ég því samt svo maður er ekki ólöglegur í vinnunni.  Ég náði líka akstursmatinu svo mín er komin með fullnægjaskírteinið þarf ekki að spá lengur í þetta bílpróf mitt nema bara vá enga punkta ;)

En þar sem ég hef ekkert meira að segja og þetta er í engri tímaröð ætla ég bara segja þetta gott og drífa mig í sturtu;)

Dutta....

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 14:28:52 / Dutta6

góð helgi búin próf eftir....

Jæja þá er komið að því að blogga.
Ég er nú ekkert mikið fyrir það að blogga þessa dagana enda mikið í prófum. Er búin með 4 próf af sex svo ég klára ekki fyrr en á föstudaginn. Þá loksins verður maður komin í sumarfrí. Auðvitað skellir maður sér á ball í Njálsbúð þá :) ekki spurning :) Allir að mæta ;)


Annars er ósköp lítið að frétta. Ég fór til Birgittu eina helgina og var þar drukkið, talað saman og fleira ýkt gaman fórum líka í gömlulaugina svaka stuð sko :)
Svo um daginn fór ég, Birgitta og Guðrún Lilja í bláa lónið smá dekurdag sonna :D það var þvílíkt næs fyrir utan hvað hárið á manni verður ógeðslegt en þetta var samt mjög gaman :D

En þessi helgi var nú frekar skrautleg. Ég, Birgitta og Guðrún Lilja fórum allar heim til mín og ætluðum sko ð vera læra:!: Við gerðum það lærðum eitthvað þær í sögu og ég i ensku (okkur gékk alveg ágætlega i þeim prófum i morgun) Svo á föstudagskvöldið fengum við okkur 2 bjóra og fórum í ekkurn fótboltaleik úti um hálf 11 leitið. Pöntuðum okkur líka pizzu og vorum bara með svona feitt kvöld :P
Laugardaginn vöknuðum við eða ég vaknaði aðeins á undan horfði á ekkerja Harry Potter mynd, fann svo til morgunmatinn vakti þær svo um 12 ogfengum okkur að eta. Svo fórum við út í sjoppu keyptum okkur ís og kíktum á rúntinn... Svo um svona 3 fórum við heim að læra.Lærðum til svona 5 þá fórum við í þorsteinslund sem er i fljótshlíð og vorum ekkað að fíflast þar :haha: Vorum svo komnar heim um hálf átta þá grilluðum við okkur mat :D geðveikt góður matur. grillað svínakjöt og sætar karftöflur og líka venjulegar með villisveppasósu sem Birgitta gerði og auðvitað var drukkið bjór með matnum þetta var geðveikt :D:D:D
En þegar við ætluðum að kíkja á kostningaskrifstofu hjá X-D auðvitað :D nei þá fundum við ekki veskið mitt þannig við fórum aftur í þorsteinslund héldum að ég hefði misst það þar. fórum leituðum var ekki þar en náðum samt að finna eitt stykki prinsessu að nafninu Ari Þór tókum hann með okkur á Hvolsvöll veskislausar og alls lausar..


Svo þegar heim var komið þá settist Birgitta í sófan inn í stofu og ofaná veskið mitt haha :D
Þannig það fannst sem er bara gott :D Svo skelltum við okkur allar á kostingavökuna og viti menn X-D að sjálfsögðu með hærstu tölur á öllu landinu gera aðrir betur :D haha :D
Svo drukkum við okkur blindfullar um kvöldið og skemmtum okkkur geðveikt vel :D



Þetta er helgin svona í stórum dráttum :) hún heppnaðist geðveikt vel og var hún bara æðisleg... En núna ætla ég að halda áfram að læra fyrir félagsfræði og ætla ég að reyna að brillera í prófinu haha:D

Læt heyra í mér eftir prófin

Dutta

p.s. til hamingju með ammælið Aron Freyr minn (K)(L) og Sammi líka :* og Ásgeir litli.....

p.p.s Til hamingju allir með forsetan hann á víst ammæli líka ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 11:15:30 / Dutta6

Eftir páska

Jæja er ekki komið að því að mín bloggi bara :P Ég er ekki alveg að nenna þessu þessa stundina eins og þið sjáið er ég búin að vera alveg svaka löt :P
En ég hef afsökun það er búið svo mikið um að læra heima og smá djamm :D
fór til Birgittu síðustu helgi og var maður alveg ofurölvi og jájá bara drulla haha :D en við fórum í pottinn hjá hnni á föstudagskvöldið og var drukkið þar og haft gaman svo á laugardagskvöldinu fórum við í gömlu lauguna að Selljavöllum og vorum þar langt fram á kvöld, svo þegar við komum heim til Birgittu afur var þá ekkji bara Hlynur og Símon mættir, símon nokkuð vel í því og Hlynur já það mætti segja að hann væri bara dauður með sitt spritt haha:haha:
Svo er ég bara búin að vera læra og læra og læra :) geðveikt dugleg..... : Við 2. árs nemar :P fengum bekkjabúingana áðan og já aftan á mínum stendur 5.bekkur.... fyrir þá sem fatta ekki þá er það að því að ég "féll" :P eða sko ég vil að það sé meiningin. En fyrir þá sem eruglöggir eiga alveg að geta fattað þetta en já svo er talan sjö...alveg eins og var hjá Deivid bekham :P fyndin ha?

En ég ætla fara drulla mér í tíma enda alveg gjörsamlega innihaldslaust blogg....

Takk fyrir pent
Dutta


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 13:57:44 / Dutta6

páskafrí.

hæhæ...

Loksins er komið páskafrí :P Ég reyndar fór aðeins fyrr i páskafrí því ég þurfti að fara i svokallaða kirtlatöku/eitlatöku ;) á fimmtudaginn.  Það er ekki það besta sem ég hef farið í en samt er þetta ekkert eins vont og ég hélt, verkirnir eru samt aðallega í eyrunum og mér þdatt það svo engan vegin í hug :P Ég get borðað eiginlega allan mat, ég hakka hann bara niður og ét svo :P
En mér var sagt að ég mætti ekki borða neitt súkkulaði og helst engan sykur enda er ég alveg að deyja núna mig langar svo í hlaup, draum og amerískankelinuhring mmmmm :haha:

Í gær þá eignaðist ég lítin frænda kl 17:21 og vil ég bara óska Steina, Kittu og Eddu Katrínu til hamingju með nýja fjölskyldu meðliminn :D Er einmitt að fara sjá hann örugglega á fimmtudaginn ef ég verð góð í hálsinum *hope*

En fyrir þá sem vilja vita þá er páskaball á morgun í Njálsbúð. Eins og hinir eru að spila og er 16 ára inn... Mig langar svo geðveikt að kíkja. Kannski maður reyni það skaðar allavega ekki ;) Verst bara að ég þarf að vera edrú ef ég fer.. því ég má ekkert drekka fyrr en 10 dögum eftir aðgerðina:evil:

En ég ætla ekki að hafa þetta neitt mikið lengra. minna ykkur samt á myspace síðuna mína sem er www.myspace.com/dutta6 og svo er það hin blogg síðan mín sem er www.blog.central.is/lamelle 

adios

Dutta :D



» 3 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 22:35:34 / Dutta6

Komin með Vinnu

hæ hó..

Ætlaði bara láta ykkur vita að ég fékk vinnu í dag :P Það vildi svo skemmtilega til að ég fór á Hvoslvöll í dag með stelpurnar Guggu og Særúnu. Fengum við okkur pizzu, mátuðum kjóla heima, náðum i dót heim til mömmu og pabba þar sem þau voru að koma frá útlöndum og ýkt brún og sæt :D

En jámm svo fór ég í Hlíðarenda að ná í pakka fyrir GL sem er stelpa hérna á Laugarvatni. Þá hitti ég Möggu Siggu sem er konan sem rekur Hlíðarenda og við byrjum bara að spjalla um lífið og tiveruna þanngað til hún segir hey Kristrún viltu koma og vinna hérna? ég var nú ekki alveg viss fyrst en svo sagði hún "hvernig viltu vinna? mig bara vantar svo starfsfólk!" ég sagði bara okey ég er til í að vinna aðra hvora helgi þanngað til í mai. hún bara okey og ertu svo til í að byrja svo aftur að hausti? Ég bara já ekkert mál eins og staðan er í dag.! þá kom bara flott komin með vinnu kemur bara næsta föstudag og byrjar hlakka til að sjá þig ;)
Og mín bara komin með vinnu :D Ekki lengi að þessu... haha :D Vonandi færð þú vinnu Særún bráðum haha :D:D:D

Svo er árshátíðin núna á föstudaginn og ball á laugardaginn og vona ég nú bara sem flestir mæti á ballið munið bara að skrá ykkur á gestalista hjá e-h. Það kostar 2000 kr inn og Sixties eru að spila og hafa þeir verið mjög góðir á böllum :D Endilega komið sem flest og dragið fólk með ykkur ;)

En ég ætla ekkert að hafa þetta mikið lengra nema þetta var æðislegur dagur með ykkur stelpur :D Vonandi verða fleiri svona dagar og vonandi kemst Signý með næst :D

góðar kveðjur Dutta

p.s. minni á hina síðuna mína www.blog.central.is/lamelle er þar með Guðbjörgu, Særúnu og Signý í blogg færslum ;)

Njótið, og verið heil haha :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 23:11:31 / Dutta6

í bænum

hæhæ...!

Það er bara allt gott að frétta af mér :) Er núna bara i bænum með litla frænda við hliðina á mér. Vorum að koma úr bíó. Fórum á myndina Norbit með Eddie Murrfy (hvernig sem það er skirfað :P) Nokkuð góð mynd :)

En já það sem er að frétta er það að það er árshátíð í ML næstu helgi, svo fer ég i kirtatöku 29. mars og þá er komið páskafrí :D  Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja ykkur meira nema jújú mín er orðin 18 ára gömul kellinig :P já hrukkukremið er borið á 2-3 á dag :P

Alltaf styttist í þessa blessuðu Benidorm ferð og er manni farið að hlakka til og manni hlakkar alltaf meira til með hverjum deginum enda erum við stelpurnar farnar að plana eitt og annað enda er ekki rætt neitt annað :) hehe :D

 En það skeði eitt skemmtilegt við mig á miðvikudagskvöldið úff :P Minns fékk bara stór kúlu aftan á hausinn og þvílikan hausverk og læti haha :D Það var þannig að við á vistinni vorum eitthvað að fíflast  og Snorri kallinn tekur mig upp á fótunum snýr mér á hvolf og rak mig í hurðakarminn á setustofunni og ég fékk bara stóra kúlu i verðlaun haha :haha: 

En þar  sem ég er bara farin að skirfa eitthvað til að skirfa og það nennir örugglega engin að lesa þetta þá ætla ég bara að kveðja í þetta sinn úr reykjavíkinni og bið bara heilsa öllum ;)

kv

Dutta


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 21:29:43 / Dutta6

blogg?

jæja ég held það sé komin tími til að blogga þar sem ég nenni ekki að setjast niður og fara læra :)

Það er voða lítið að frétta eins og vanalega, enda gerist voða lítið hérna..

Það var reyndar skyldó hjá okkur krökkunum á 2. ári og var mikið fylleri og mikið gaman laust við allt drama og ekkert vesen á neinum sem er náttlega bara mjög gott...

Núna eru samt eiginlega allir veikir hérna á vistinni, ég er pínu veik er bara með kvef, hausverk og hósta en laus við allan hita :haha: sem ég tel bara nokkuð gott :)
X-factor er núna á föstudaginn og auðvitað fer maður á sjálfan þáttinn... Er að fara með skólanm eða þeim sem vildu fara og erum við nú samt ekki mörg en þó nokkur :P Vonandi verður bara gaman þar og svaka fjör :)

Þar sem þetta er nú frekar innihaldslaust blogg ætla ég að hætta því nuna i bili

adios

Dutta sem langar heim til mömmu sinnar :P

» 8 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 15:12:27 / Dutta6

Daginn í dag :)

hæhæ :D

Það er nú voða lítið búið að gerast hjá mér þessa dagana. Nema eg fór i kistulagningu hjá Afa í gær og er voða gott að það sé liðið. Þetta var mjög erfitt en samt gott æjj veit ekki hvernig ég á að útskira það en yfir í annað ;) Það er skyldó hjá okkur 2 árs nemum hérna í ML og ætlum við í sumarbústað og djamma af okkur rassgatið :D

Djöfull vona ég að það verði ýkt gaman :D Svo helgina eftir það er ég að fara á X-factor með skólanum svo heim eftir það :) eða fer reyndar ekki heim fyrr en á Laugardagskvöldinu þannig ég verð í bænum frá föstudagskvöldi til laugardagskvöld :D Svo á maður ammæli bráðum 27. feb og verður maður sjálfráða :D það verður svaðalegt maður haha :haha: Það ekki lengur að spurja neinn um neitt bara geri hlutina :P Svo ætlar Hanna að baka handa mér og ætlar Tinna Lind, Guðrún Tinna og vonandi Birta að koma i köku og smá ammæli mæli með að þið komið með pakka ;)



Ég veit nú ekki hvað ég á að segja ykkur meira... það er svo ósköp lítið að frétta eitthvað... maður er bara alltaf i skólanum að reyna læra þennan andskota en gengur svona upp og ofan verð bara fara taka mig á svo ég falli ekki aftur :$



En alltaf styttist í Benidorm og er ég farin að hlakka svaka mikið til og er lika þvílikur spenningur i stelpunum 8) Sem minnir mig á það að bróðir minn var að koma heim frá spáni núna á sunnudaginn og er hann að fara svo aftur út í mars til spánar allt frítt :evil: Þoli hann stundum ekki ohh :P En já ég náði í hann á flugvöllinn á sunnudaginn og skrap i Sandgerði og ætlaði að skoða þetta skip sem átti að vera þarna rétt hjá nei nei þá er þetta bara þarna lengst i burtu eða mér finnst það þannig ég nennti ekki að keyra alla leið að þvi snérum bara við.... En ég hélt samt að Sandgerði væri aðeins stærri bær er svo virtist ekkert hann er ekki mikið stærri en Hvolsvöllur en er samt soldið stærri verð að viðurkenna það ;)
 
  
        Sandgerði    (var ekki til betri mynd af Sandgerði)                             Hvolsvöllur

En ég ætla ekkert að hafa þetta mikið lengra þar sem ég er líka að fara í íþróttir gangi mér vel þar :P

en sæl að sinni :D

Dutta íþróttargarpur 8|


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 14:37:40 / Dutta6

lífið í núinu

hæhæ...

Já eins og kannski þið vitið þá er ég komin með lykilorð á síðuna. Mér finnst orðið svo mikið af ógeðsfólki sem gæti alveg þess vegna verið að skoða bloggið og síðuna sem er ekki alveg að heilla mig ;)

Annars er voða lítið að frétta þannig.. Fékk þær sorgar fréttir í gær að Lang-afi væri dáinn. En ég er samt fegin fyrir hans hönd að hann skúli vera farinn búinn að vera mikið veikur síðasliðið ár og illa á sig kominn bara.
Það var engin skóli á mánudaginn og aðeins 2 tímar á þriðjudaginn sem ég nennti ekki að mæta í og í dag voru aðeins 3 tímar :D Svo þetta er búið að vera mjög góð vika.

Ég og Hanna erum að spá í að kíka til Tinnu og hennar Þjóðbjargar Þulu :P  sem er einmitt eins mánaða í dag :D  En það kemur allt i ljós hvort það verður eða ekki...

Sjá þessa rúsínu.. rock on ;)

Núna ligg ég hér með Silju og Guðbjörgu að hrofa á She\'s the man. Úff við erum búnar að hafa það svo gott núna síðustu daga. Bara búnar að liggja upp í rúmi að hrofa á bíómyndir, éta nammi og fitna. En ég og Særún förum i kvennaleikfimi inná milli þannig við megum þetta alveg... ;)
En ég ætla ekkert að hafa þetta mikið lengra þar sem ég er alveg að deyja úr þreytu :P

Kveð að sinni
Dutta þreytta og myglaða;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 17:28:53 / Dutta6

Smá fréttir :P

Það er reyndar mjög lítið að frétta af mér... Er búin að vera veik síðan á mánudaginn kemur á óvart :D Er bara búin að vera með hálsbólgu, eyrnabólgu og smá hita ekkert mikin þannig ég er ekkert búin að vera i skólanum:P 
 

Það var lika ball hérna á laugarvatni um helgina, stjórnarskiptaballið :D ýkt gaman alveg :D allavega náði ég alveg að skemmta mér nokkuð vel fyrir utan þegar ég fattaði að ég væri búin að týna síðmanum mínum en ég fann hann samt fljótt aftur :D


En ég keypti mér ferð til Benidorm síðasta fimmtudag :D ég fer þann 5. júlí og kem aftur 12. júli við verðum á hóteli sem heitir Oasis Plaza :P mjög fint getið skoðað myndir af því á www.plusferdir.is  getið bara leitað þar hehe :hehe: ég er svo spennt að þið getið ekki ímyndað ykkur :D:D:D:D:D:D
Ég ætla með vinkonum mínum héðan úr ML þeim Særúnu, Guðbjörgu sem eru úr Sandgerði og Signý héðan frá Laugarvatni :D



En þar sem Guðbjörg þarf tölvuna sína þarf ég að hætta að blogga :D

kveðja

Dutta

p.s. Til hamnigju með ammælið Alli bróðir, Palli hennar Öggu og Thelma Dröfn ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 17:13:54 / Dutta6

Dagskráin :P haha

Herru þessi klipping var nú bara smá djók sko... :S sumir voru farnir að taka þessu en ég er ekki búin að lita mig dökkhærða með krullur!  

En annars er bara voða gott að frétta. Ég fór heim um helgina og hafði það bara gott reyndar skrapp ég aðeins i bæinn á laugardeginum með mömmu og pabba. Ég, mamma og amma fórum á laugarvegin og náðum við alveg að versla alveg helling ég keypti mér kjól, 2 kápur og mamma keypti sér 2 kjóla og eitthverja skartkripi :P

En ég er mikið að spá i að fara i bæinn næstu helgi til Alla bróðir að hjálpa honum að flytja... held það sé ekkert svo vitlaus hugmynd eða hvað finnst ykkur...?  :$  
 
Veit nú ekkert hvað ég á að segja ykkur það er svo lítið búið að ské hjá mér þannig nema náttlega vinkona mín eignaðist litla stelpu 7. jan og hún er algjört krútt. Selma vinkona mín er að fara til Chile 29. jan minni mig og er maður eftir að sakna henni frekar mikið :)  bróðir minn á afmæli 31. jan og ætlar hann að halda upp á það 27. jan svo ég veit ekki vort ég eigi að fara i ammælið hans og fá þar frítt áfengi og skemmta mér með ættinni eða fara á ball á Laugarvatni sem kostar mig svona 6000- 7000 kr.. Svo er þorrablóltið hérna heima fyrstu helgina i feb og ætla ég þá aftur að djamma læt mömmu bara borga :haha:  Svo er helgina eftir það er langa helgin á Laugarvatni eða er i fríi til mánudags þá er ég kannski að spá i að fara aftur í bæinn held ég annars veit ég ekki... Helgina svo eftir það er ég að fara í sumarbústað (annað fillerý) hehe... Svo helgina eftir það ætla ég heim og hafa það gott þvi þá á ég afmæli eða reyndar á þriðjudeginum en ætla samt að vera heim um helgina og gera ekkað skemmtilegt með fjölskyldunni og vinunum.
Svo kemur fyrsta helgin i mars þá er ég að spá i að halda upp á ammælið mitt bara kannski veit það ekki alveg kemur allt i ljós hvort ég eigi pening haha :D svo helinga þar á eftir er árshátíðin á Laugarvatni og þá er aftur fillerý og þá þarf maður að eiga pening .. þannig það er bara mikið að gera hjá mér næstu helgar...

En ég fer i páskafrí 31. mars og byrja svo i vorprófum kringum 7. mai og er búin i kringum 16-22. mai þá er ég komin i sumarfrí og ætla að fara vinna og vinna og vinna. Samt verð ég mjög líklega ekki inní skála þetta árið er að spá i að flytja mig alfarið út á völl og fara slá gras og svona gaman. Vera úti í sólinni og hafa það bara gott :D  En ég er nú samt ekkert farin að pæla neitt meira... Þetta er nú allt eftir að koma i ljós bara!

En ég ætla ekkert að hafa þetta mikið lengra...

Dutta


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
27. feb 2008 ver�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1457 dögum
Benidorm 5 j�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1694 dögum
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
27. feb 1989 f�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734555 dögum